Síða 11 af 12
Sumarfrí
Foreldrum leikskólabarna ber að taka sumarfrí í 4 vikur.
Um börn sem flytjast frá dagforeldri/einkareknum leikskóla yfir til leikskóla eftir 1. maí gilda sömu reglur – þeim ber að taka fjögurra vikna samfellt sumarfrí. Börn sem byrja í leikskóla eftir 1. maí og hafa ekki verið í vistun annars staðar hafa val um hvort þau taki sumarfrí. Börn sem byrja fyrir 1. maí taka 4 vikur í sumarfrí.